Frelsi til að njóta

Share
Sundlaug Seltjarnarness

Seltjarnarnesbær hefur tilkynnt að hann muni hverfa frá fyrri ákvörðun um skertan opnunartíma sundlaugarinnar á Seltjarnarnesi. Í stað þess að loka kl. 21.00 á virkum dögum og kl. 18.00 um helgar þá verður farið í gamla opnunartímann þ.e. opið verður á virkum dögum til kl. 22.00 og til kl. 19.30 um helgar eins og verið hafði um árabil og þekkt var.

Mikil óánægja var með upphaflegu ákvörðunin og skerðingu á opnunartímanum. Þess utan þá er óljóst hver sparnaðurinn er ef þá nokkur. Ekki hafa komið fram tölulegar upplýsingar en að sögn sundlaugargesta þá hefur orðið sjáanlegur frádráttur og mikil þjónustuskerðing, sér í lagi um helgar þegar fólk á frí.

Það má segja að ákvörðun fámenns hóps bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar hafi sýnt bæjarbúum að framkvæmdin var hugmyndasnauð þ.e. að ganga á rétt íbúa til þess að nota þjónustumannvirki Seltjarnarness sem eiga í samkeppni við Sundlaug Vesturbæjar. Í stað þess að laga gufurnar og sundlaugina sjálfa og bæta þjónusta þá var farið í að grafa undan velferð íbúanna. Það heitir á fagmáli ,,sundlaugarsósíalismi'' þegar fámennur hópur ákveður að öllum skuli líða jafn illa þegar nær hefði verið að breyta verðskránni, hækka verð og hætta að niðurgreiða fyrir íbúa næsveitarfélaganna þar sem allir undir 67 ára aldri fengu frítt á sama tíma og 67 ára Seltirningar þurfa að greiða fyrir sömu þjónustu í Reykjavík.

Nálægðin við Vesturbæjarlaugina og fleiri laugar hefur leitt til þess að fólk hefur farið í stórum stíl yfir í sundlaugar nágrannasveitarfélaganna og er það miður. 16. maí er dagur þar sem verður fagnað á Seltjarnarnesi.