Kosið á Seltjarnarnesi
Spennandi kosningar framundan en 3.541 er á kjörskrá á Seltjarnarnesi.
Það verða spennandi kosningar á Seltjarnarnesi á laugardaginn 16. maí 2026 þar sem þrír flokkar bjóða fram, merktir listabókstaf, XD, XS og XM. Gamli meirihluti XD skilar þá af sér eftir 4 ára stjórnarsetu og nýtt kjörtímabil hefst. Á kjörskrá 2026 eru 3.541 íbúar með lögheimili á Seltjarnarnesi.
Á landinu öllu verðu kjörin 61 sveitarstjórn en þeim fækkar um þrjár frá vegna sameininga sveitarfélaga sem þegar hafa farið fram eða taka munu gildi eftir kosningarnar.
Það er ástæða til þess að þakka þeim sem hafa gefið sér tíma til þess að sinna málefnum samfélagsins á Seltjarnarnesi og skiptir þá engu máli hvaða stjórnmálaflokki menn tilheyra. Markmiðið hlýtur fyrst og fremst að vera að vinna að heildarhagsmunum bæjarbúa það virðist stundum gleymast.
Það hvílir mikil ábyrgð á þeim sem bjóða sig fram og auðvitað eru margar breytur sem þarf að glíma við í dagsins önn, sumar stórar og krefjandi pólitískt séð, aðrar minni en samt samfélagslega mikilvægar. Það sem virðist einfalt eins og friðlýsing í bæjarlandinu eða breyttur lokunartími sundlaugar og skert þjónusta eru dæmi um þetta.
Auðvitað hefur gengið á ýmsu en heilt yfir hefur reksturinn verið stóra málið. Eins og vitað er þá hafa mörg sveitarfélög glímt við fjárhagslegan vanda, tekjur ekki nægar til þess að standa straum af öllum útgjöldum. Stighækkandi launakostnaður, almennur rekstrarkostnaður hefur ennfremur hækkað talsvert, þrálát verðbólga og hátt vaxtastig hafa haft mikil áhrif á rekstur Seltjarnarnesbæjar.